Ég heiti Eyþór Arnar Alfreðsson. Ég starfa sem sjómaður, trúlofaður og faðir tveggja yndislegra barna.
Ég byrjaði að veiða þegar ég var bara krakki, kannski í kringum 3 eða 4 ára með gamalli spúnstöng sem pabbi gaf mér. Við ferðuðumst mikið um landið og höfðum við alltaf stöng og veiðikortið meðferðis.
Ég byrjaði fyrst að nota flugustöng um 10 ára aldur með frænda mínum sem var með á í leigu á vesturlandi. Fyrsti laxinn minn á flugustöng kom þegar ég var 12 ára gamall á Black Frances 12#. Fyrsti laxinn minn veiddist tveimur árum áður á spúnstöng en við vitum allir að það telst ekki með.
Seinna fór ég í gegnum tímabil þar sem veiði þótti ekki spennandi en fór þó við og við að veiða með fjölskyldunni og lét það duga.
Það var ekki fyrr en árið 2018 að áhuginn kom aftur og það að miklum kraftir. Ég fór og náði í gömlu Scott stöngina mína og byrjaði að kasta aftur og veiddi fallegan 2 eða 3 punda urriða og þá vaknaði eitthvað innra með mér og frá þeim degi get ég ekki hugsað um annað en að veiða.
Ég nota ekki spúnstöngina eins mikið nema þegar ég er að veiða með krökkunum mínum.
Núna, átta árum síðar, á ég fleiri stangir og hjól, betri og dýrari búnað því eins og þeir segja alltaf, hvað þarf maður að eiga margar stangir? eina í viðbót.
Hverjir erum við
Ég heiti Björn Grétar Baldursson. Ég vinn sem flugumferðastjóri, er giftur og á tvö yndisleg börn.
Ég man hvað ég elskaði að ferðast vestur með fjölskyldu minni um sumrin og eyddi ég öllum mínum frítíma á bryggjuni í Súðavík að veiða eða reyna komast með þeim bátum sem voru að fara út þá morgna.
Ég man einn morguninn vaknaði ég snemma, um 6 leitið, til að hitta vin minn niður við bryggju. Við tókum strandveiðibát sem pabbi hans átti og silgdum við honum þar til við sáum ekkert nema sjó. Við vorum þá 11 eða 12 ára. Við eyddum öllum deginum að veiða og fórum ekki heim fyrr en það fór að rökva smá. það var óhætt að segja að þegar við komum í land fengum við ekki þann bát lánaðan aftur.
Þegar ég varð eldri varði ég minni og minni tími við veiðar, nám og börn komu og því fannst mér lítill sem enginn tími til að veiða sem og var ég ekki með bátinn fyrir norðan þar sem ég bý. Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum sem tengdafaðir minn gaf mér allt gamla veiði dótið sitt. Það var þá sem ég ákvað að prófa flugu veiði í fyrsta skipti. Það gekk ekki vel en seinna meir fékk ég nýrri stöng sem var Vision Hero 9" 7# og veiddi ég minn fyrsta urriða. Hann var ekki nema 18cm en það skipti engu, veiðidellan var mætt aftur. Þannig það eru nú two ár síðan ég veiddi minn fyrsta fisk á flugu og hefur ekki verið snúið við síðan. Ég er ennþá mjög nýr í þessu sporti og hlakka til að læra meira.
Hafðu samband