Fyrsta kastið

Allt frá því ég man eftir mér hef ég verið að veiða. Fjölskylda mín átti sumarbústað á Vestfjörðum og við eyddum hverju sumri þar. Þá var vaknað eins snemma og ég gat til að reyna að komast niður á bryggjuna á undan öllum öðrum. Og þar eyddi ég öllum deginum. Árin liðu og því eldri sem ég varð, því minna veiddi ég. Það tók ekki langan tíma þar til veiðin varð fjarlæg minning sem ég heimsótti stundum þegar ég þurfti á nostalgíunni að halda.
Svo mörgum árum síðar, með tvö börn og hjónaband, var ég í ferðalagi með fjölskyldunni og nokkrum vinum þegar einn þeirra, Kristján heitir hann, spurði mig hvort ég hefði einhvern tímann verið að veiða á flugu. Ég sagði honum auðvitað gamlar hetjusögur en viðurkenndi að ég hefði aldrei veitt á flugu þótt tengdafaðir minn hefði gefið mér allar gömlu stangirnar sínar rétt áður en hann flutti til Spánar. Sama dag rétti hann mér flugustöng, 6W switch stöng, og gaf mér grunnleiðbeiningarnar. Færðu stöngina ákveðið en ekki þvingaðu hana og færðu hana á milli tíu og tvö.
Ég man hvernig það var að finna línuna svífa í loftinu í fyrsta skipti. Glæsileikinn og mýktin kom mér á óvart, þetta snerist ekki um styrk heldur tækni og tímasetningu. Það fyndna var að ég var ekki einu sinni að kasta í á eða vatn. Ég var á miðju túni án flugu, bara með flugustöng og flugulínu, en það var nóg til að vekja áhuga minn.
Stuttu síðar fékk ég mína fyrstu flugustöng, 7W Vision einhandastöng. Og ég átti svo sannarlega erfitt í byrjun. Ég náði varla að ná línunni út og komu endalausir vinhnútar. En ég hélt áfram og í byrjun september veiddi ég minn fyrsta urriða. Hann var lítill, mjög lítill, kannski um 19 cm. Það skipti ekki máli, Það var nóg til þess að veiðin veiddi mig.

Þess vegna ákváðum ég og Eyþór, sem er hinn helmingurinn af TightLinesIceland, að búa til þessa vefsíðu til að deila með ykkur ástríðu okkar fyrir veiðum.

Björn Grétar Baldursson

Previous
Previous

Febrúarflugur